Nokia 6120 classic - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem
tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg
áður en rafhlaða er sett í aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu
hlutirnir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur
raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur
skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess
að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg
fyrir að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur, líkt og myndavélar-,
fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet.
Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

background image

97

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er að halda, t.d. tengiliðum
og dagbókaratriðum.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með því að
slökkva á tækinu og fjarlægja rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra aukahluti.
Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til
lagfæringar.

Förgun

Yfirstrikuð ruslafata á vörunni, fylgiskjölum eða umbúðum gefur til kynna að
í Evrópusambandinu verður að farga öllum rafbúnaði og rafeindabúnaði, rafhlöðum
og rafgeymum í þar til gerð ílát. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi.

Afhendið vörurnar á söfnunarstöðum til að koma í veg fyrir hugsanlegan skaða
á umhverfinu eða heilsu manna vegna eftirlitslausrar förgunar úrgangs og til að
vinna að sjálfbærri endurvinnslu á hráefnum. Upplýsingar um söfnunarstaði er að
finna hjá söluaðila vörunnar, innlendum sorphirðuyfirvöldum, ábyrgðarsamtökum
innlendra framleiðenda eða hjá innlendum umboðsaðila Nokia. Nánari upplýsingar
er að finna í Eco-yfirlýsingu vörunnar eða í landaupplýsingum á www.nokia.com.