
■ Hjálp
Tækið inniheldur hjálpartexta fyrir valmyndir þess. Þá má opna í forritum tækisins
eða í aðalvalmyndinni.
Til að skoða hjálpartexta þegar forrit er opið skaltu velja Valkostir > Hjálp. Til að
skipta milli hjálpartextans og forritsins sem er opið í bakgrunninum skaltu halda
inni takkanum Valmynd. Veldu Valkostir og úr eftirfarandi valkostum:
Skrá yfir efni—Til að skoða skrá yfir tiltæk efni í viðkomandi flokki.
Skrá yfir hjálparfl.—Til að skoða skrá yfir hjálparflokka.
Leita e. efnisorðum—Til að leita að hjálparefni með lykilorðum.
Til að opna hjálpina úr aðalvalmyndinni skaltu velja Valmynd > Forrit > Hjálp.
Í skránni yfir hjálparflokka skaltu velja forrit til að sjá hjálpartexta þess. Til að
skipta milli hjálparskráarinnar, sem táknuð er með
, og lykilorðalista, sem
táknaður er með
, skaltu skruna til vinstri eða hægri. Til að birta
hjálpartextann skal hann valinn.

9