Nokia 6120 classic - Takkar og skipanir sem nýtast þegar vafrað er

background image

Takkar og skipanir sem nýtast þegar vafrað er

Til að opna tengil, velja eða merkja í reiti skaltu ýta á skruntakkann.

Til að fara til baka um eina síðu þegar þú vafrar skaltu velja Til baka. Ef Til baka
er ekki í boði skaltu velja Valkostir > Valm. í leiðarkerfi > Forsaga til að skoða lista
í tímaröð yfir síður sem þú hefur skoðað. Til að velja tiltekna síðu skaltu skruna til
vinstri eða hægri og velja hana. Þessi listi er hreinsaður í hvert sinn sem hætt er
að vafra.

Til að vista bókamerki þegar vafrað er skaltu velja Valkostir > Vista í
bókamerkjum
.

Til að uppfæra efni síðunnar skaltu velja Valkostir > Valm. í leiðarkerfi >
Hlaða aftur.

background image

59

Til að opna tækjastiku vafrans skaltu skruna að auðum hluta síðunnar og halda
skruntakkanum inni.

Flýtivísar þegar vafrað er
1
—Opna bókamerkin.

2—Finna leitarorð á síðunni.

3—Fara aftur um eina síðu.

5—Birta alla opna glugga.

8—Birta yfirlit síðunnar sem er opin. Ýttu aftur á 8 til að súmma að og skoða
tiltekinn hluta síðunnar.

9—Slá inn nýtt veffang.

0—Fara á upphafssíðu.

* eða #—Súmma síðuna að eða frá.