Nokia 6120 classic - Vafrastillingar

background image

Vafrastillingar

Veldu Valkostir > Stillingar > Almennar, Síða, Gagnaleynd eða Vefmötun og svo
úr eftirtöldum valkostum:

Almennt
Aðgangsstaður—Veldu sjálfgefna aðgangsstaðinn.

Heimasíða—Tilgreindu veffang tiltekinnar heimasíðu.

Smákort—Kveikt eða slökkt.

background image

61

Listi yfir fyrri síður—Veldu hvort listi yfir síður sem þú hefur skoðað meðan þú
vafrar birtist þegar þú velur Til baka.

Öryggisviðvaranir—Til að fela eða birta öryggisviðvaranir.

Java/ECMA forskrift—Til að leyfa eða leyfa ekki forskriftir.

Síða
Hlaða efni—Veldu hvers konar efni er hlaðið inn sjálfvirkt þegar þú ert að vafra.
Ef þú velur Aðeins texti skaltu velja Valkostir > Verkfæri > Hlaða inn myndum til
að hlaða inn myndum þegar þú ert að vafra.

Skjástærð—Til að velja hvernig nota á skjáinn til að skoða síður.

Sjálfvalin kóðun—Þegar þú velur Sjálfvirkt reynir vafrinn sjálfkrafa að velja
rétta stafagerð.

Loka f. sprettiglugga—Til að leyfa eða banna að sprettigluggar opnist sjálfkrafa
þegar þú ert að vafra.

Sjálfvirk hleðsla—Til að gera sjálfvirka uppfærslu á vafrasíðum virka eða óvirka.

Leturstærð—Til að velja leturstærð.

Einkamál
Sjálfvirk bókamerki—Veldu Virk ef vista á bókamerkin sjálfvirkt í möppunniSjálfv.
bókamerki
þegar síðan er heimsótt. Þegar þú velur Fela möppu er bókamerkjunum
samt sjálfkrafa bætt í möppuna.

Vistun innsláttar—Ef þú vilt ekki að upplýsingar sem þú slærð inn á vefsíður
séu vistaðar og notaðar næst þegar farið er inn á síðuna skaltu velja Slökkt.

Fótspor—Til að heimila eða banna móttöku og sendingu fótspora (fótspor
(cookies) eru notuð til að bera kennsl á notendur og hvaða efni þeir vilja
helst skoða).

Vefmötun
Sjálfvirkar uppfærslur—Tilgreindu hvort þú vilt að vefmötun verði uppfærð
sjálfvirkt og hve oft á að uppfæra. Það að stilla forritið á að sækja vefmötun
sjálfkrafa getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitu.
Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.

Aðg.st. f. sjálfv. uppfærslu—Veldu tiltekinn aðgangsstað fyrir uppfærslu (aðeins
hægt þegar stillt er á Sjálfvirkar uppfærslur).

background image

62