Nokia 6120 classic - Visual Radio

background image

Visual Radio

Þú getur notað Visual Radio forritið sem FM-útvarp með því að stilla og velja
stöðvar sjálfvirkt, eða með sjónrænum upplýsingum um útvarpsefnið, ef þú stillir
á stöðvar sem bjóða upp á Visual Radio þjónustuna. Visual Radio þjónustan byggir
á pakkagögnum (sérþjónusta).

Til að hægt sé að nota þessa þjónustu þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

• Útvarpsstöðin og þjónustuveitan verða að styðja þessa hana.

• Internet-aðgangsstaðurinn verður að vera skilgreindur með aðgang að

Visual Radio þjónustu símafyrirtækisins.

• Nauðsynlegt auðkenni verður að vera til staðar fyrir Visual Radio og kveikt

verður að vera á þjónustunni.

Ekki er hægt að kveikja á Visual Radio nema síminn sé nettengdur.

FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er á þráðlausa tækinu. Samhæft höfuðtól eða
aukahlutur þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.

Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum
hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar
hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.

Yfirleitt er hægt að hringja eða svara símtali á meðan hlustað er á útvarpið.
Hljóðið fer sjálfkrafa af útvarpinu þegar talað er í símann.

Til að kveikja á Visual Radio skaltu velja Valmynd > Miðlar > Radio.

Veldu Hætta til að slökkva á útvarpinu.