Nokia 6120 classic - Tónlistarsafn

background image

Tónlistarsafn

Tónlistarsafn er gagnagrunnur með tiltækum lögum. Í tónlistarsafninu er hægt að
velja sér tónlist til að hlusta á og búa til og skipuleggja lagalista.

Til að opna tónlistarsafnið í aðalvalmynd tónlistarspilarans skaltu
velja Valkostir > Tónlistarsafn.

Til að uppfæra tónlistarsafnið og leita að lögum í minni tækisins og
á minniskortinu skaltu velja Valkostir > Uppfæra Tónlistarsafn.

Hægt er að velja tónlist úr tónlistarsafninu með ýmsu móti. Ef spila á t.d. tiltekið
albúm skaltu velja Plötur skruna að albúminu og velja Valkostir > Spila. Til að
hlusta skal á tiltekin lög í albúminu skaltu velja Plötur og albúm, merkja lögin og
velja Valkostir > Spila.