Nokia 6120 classic - Myndavélarstillingar

background image

Myndavélarstillingar

Tækið styður myndupplausn sem er 1600 x 1200 dílar.

Til að breyta stillingum myndavélarinnar skaltu velja Valmynd > Miðlar >
Myndavél > Valkostir > Stillingar.

Veldu Mynd og úr eftirfarandi stillingum:

Gæði myndar, Upplausn (Myndavél 1) og Upplausn (Myndavél 2)—Því meiri sem
gæðin og upplausnin eru, þeim mun meira minni tekur myndin.

Sýna tekna mynd—Til að birta ekki myndina sem tekin er skaltu velja Nei.

Sjálfv. nafn myndar—Til að breyta nöfnum á myndum sem eru teknar.

Minni í notkun—Til að velja hvort vista eigi myndirnar í minni símans eða
á minniskortinu.

Veldu Hreyfimynd og úr eftirfarandi stillingum:

Lengd—Ef stillt er á Hámarks er lengd hreyfimyndarinnar aðeins takmörkuð af
því minni sem er tiltækt. Ef stillt er á Stutt er upptökutíminn ákjósanlegur fyrir
MMS-skilaboð.

background image

50

Upplausn (Myndavél 1) og Upplausn (Myndavél 2)—Veldu upplausn fyrir
hreyfimyndina.

Sjálfgefið heiti—Til að velja nafn á hreyfimynd.

Minni í notkun—Til að velja hvort vista eigi myndskeiðin í minni símans eða
á minniskortinu.