
■ Myndavél
Ef nota á aðalmyndavélina skaltu ýta á myndavélartakkann eða velja Valmynd >
Miðlar > Myndavél. Veldu Valkostir > Nota myndavél 2 til að taka sjálfsmynd.
Til að taka mynd skaltu ýta
á myndavélartakkann. Myndin er
vistuð í Myndir í Gallerí og myndin
birtist á skjánum. Til að fara aftur
í myndgluggann skaltu velja
Til baka. Ýttu hreinsitakkann til að
eyða myndinni.
Skruna skal upp eða niður til að súmma að eða frá.
Til að taka myndaröð skaltu velja Valkostir > Myndaröð > Kveikt. Þegar ýtt er
á skruntakkann tekur myndavélin sex myndi í röð og birtir myndirnar á töflu.
Til að kveikja á flassinu (aðeins í aðalmyndavélinni) skaltu velja Valkostir >
Leifturljós > Virkt. Ef Sjálfvirkt er valið er flassið notað sjálfvirkt þegar þörf krefur.

49
Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað. Ekki má nota flassið á fólk eða dýr sem eru
mjög nálægt. Ekki má hylja flassið þegar mynd er tekin.
Til að nota næturstillingu í daufri birtu skaltu velja Valkostir >
Næturstilling > Kveikt.
Til að nota sjálfvirka myndatöku skaltu velja Valkostir > Sjálfvirk myndataka og
hve langur tími þú vilt að líði áður en myndin er tekin. Styddu á skruntakkann og
tímamælirinn fer í gang.
Til að stilla ljósgjafa eða litáferð (aðeins hægt í aðalmyndavélinni) skaltu velja
Valkostir > Stilla > Ljósgjafi eða Litáferð.
Til að taka upp hreyfimynd skaltu velja Valkostir > Hreyfimyndataka eða skruna til
hægri.
efst til vinstri á skjánum gefur til kynna hreyfimyndastillingu. Til að
hefja upptöku skaltu ýta á myndavélartakkann eða skruntakkann. Ýttu aftur
á myndavélartakkann til að stöðva upptöku.
Til að nota víðmyndarstillinguna skaltu velja Valkostir > Víðmynd eða skruna
til hægri.
efst til vinstri á skjánum gefur tilkynna víðmyndarstillingu.
Ýttu á myndavélartakkann til að taka víðmynd. Forskoðun á víðmyndinni birtist
á skjánum. Snúðu hægt til hægri eða vinstri. Ekki er hægt að skipta um átt.
Þú snýrð of hratt ef örin á skjánum verður rauð. Ýttu aftur á myndavélartakkann
til að stöðva víðmyndartökuna.