Nokia 6120 classic - Myndum breytt

background image

Myndum breytt

Til að breyta myndum í Gallerí skaltu skruna að myndinni og velja
Valkostir > Breyta.

Til að klippa mynd skaltu velja Valkostir > Nota áhrif > Skurður. Mynd er klippt
handvirkt með því að velja Handvirkt eða tiltekið hlutfall af listanum. Ef þú velur
Handvirkt birtist kross efst í vinstra horni myndarinnar. Skrunaðu til að velja
svæðið sem á að klippa og veldu Festa. Annar kross birtist neðst í hægra horninu.
Veldu aftur svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta svæðið skaltu velja
Til baka. Þau svæði sem eru valin mynda ferhyrning utan um þá mynd sem kemur
út úr klippingunni.

Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar sem á að klippa. Notaðu
skruntakkann til að stilla auðkennda svæðið. Hægt er að frysta valið svæði með
því að ýta á skruntakkann. Notaðu skruntakkann til að færa til svæðið innan
myndarinnar. Ýttu á skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa.

Hægt er að minnka rauðan lit í augum með því að velja Valkostir > Nota áhrif >
Laga rauð augu. Færðu krossinn að auganu og ýttu á skruntakkann. Lykkja birtist
á skjánum. Skrunaðu upp, niður, til vinstri og til hægri til að breyta stærð
lykkjunnar svo hún passi við augað. Ýttu á skruntakkann til að minnka
rauða litinn.

Flýtivísar í myndvinnslu:

• Til að skoða mynd í fullri skjástærð skaltu ýta á *. Ýttu aftur á * til að fara aftur

í venjulegan skjá.

• Ýttu á 3 eða 1 til að snúa mynd réttsælis eða rangsælis.

• Ýttu á 5 eða 0 til að súmma að eða frá.

• Flett er um súmmaða mynd með því að skruna upp, niður, til vinstri eða hægri.