Nokia 6120 classic - Hreyfimyndir fluttar úr tölvu

background image

Hreyfimyndir fluttar úr tölvu

Til að flytja hreyfimyndir úr samhæfri tölvu skaltu nota samhæfa USB-snúru eða
Bluetooth-tengingu.

Tölvan þarf að vera með eftirfarandi búnað til að hægt sé að flytja hreyfimyndir:

• Microsoft Windows XP stýrikerfi (eða nýrra)

• Nokia PC Suite 6.83 eða nýrri útgáfu

• Nokia Video Manager forrit (viðbótarforrit við PC Suite)

Notaðu Nokia Video Manager til að flytja hreyfimyndir, tengdu samhæfu
USB-snúruna eða komdu á Bluetooth-tengingu og veldu PC Suite til að tengjast.

Til að breyta sjálfgefinni stillingu USB-tengingar skaltu velja Valmynd >
Stillingar > Tenging > USB-snúra > USB-stilling.

Nokia Video Manager er ákjósanlegur kostur til að umkóða og flytja
hreyfimyndaskrár. Nánari upplýsingar um flutning hreyfimynda með
Nokia Video Manager, sjá Nokia Video Manager hjálpartextann.