Nokia 6120 classic - Hreyfimyndum breytt

background image

Hreyfimyndum breytt

Til að breyta hreyfimyndum í Gallerí og búa til sérsniðnar hreyfimyndir skaltu
fletta að myndskeiði og velja Valkostir > Ritill hreyfimynda > Valkostir > Breyta
myndskeiði
.

background image

47

Í myndvinnslunni sjást tvær tímalínur: tímalína myndskeiðsins og tímalína
hljóðinnskotsins. Ef þú bætir myndum, texta eða umbreytingum við hreyfimyndir
sjást þessi atriði á tímalínu þeirra. Til að skipta á milli tímalína er skrunað upp
eða niður.

Til að breyta hreyfimyndinni skaltu velja úr eftirfarandi Breyta myndskeiði-
valkostum:

Klippa—Klippir hreyfimyndina á klippiskjánum.

Bæta við litaáhrifum—Setur litaáhrif inn í myndskeiðið.

Nota hægspilun—Hægir á spilun myndskeiðsins.

Taka hljóð af eða Setja hljóð á—Tekur hljóðið af myndskeiðinu eða setur það á.

Færa—Færir myndskeiðið á valinn stað.

Stilla hljóðstyrk—Stillir hljóðstyrk.

Fjarlægja—Fjarlægir myndskeiðið úr hreyfimyndinni.

Búa til afrit—Tekur afrit af valda myndskeiðinu.

Breyta texta (birtist aðeins ef texta hefur verið bætt við)—Til að færa, fjarlægja
eða afrita texta; breyta lit eða lögun textans; ákvarða hversu lengi hann á að vera
á skjánum og bæta áhrifum við hann.

Breyta mynd (birtist aðeins ef myndum hefur verið bætt við)—Til að færa, fjarlægja
eða afrita mynd; tilgreina hversu lengi hún á að vera á skjánum og bæta við
bakgrunni eða litaáhrifum.

Breyta hljóðskrá (birtist aðeins ef hljóðinnskoti hefur verið bætt við)—Til að klippa
eða færa hljóðinnskotið, stilla lengd þess eða fjarlægja eða afrita innskotið.

Breyta umbreytingu—Um þrjár gerðir umbreytinga er að ræða: í upphafi
hreyfimyndar, við lok hennar og á milli myndskeiða. Hægt er að velja
upphafsbreytingu þegar fyrsta umbreyting hreyfimyndarinnar er virk.

Setja inn—Veldu Myndskeið, Mynd, Texta, Hljóðskrá eða Ný hljóðskrá.

Kvikmynd—Til að skoða kvikmyndina í fullri skjástærð eða sem smámynd, vista
hana eða senda, eða klippa hana niður í þá stærð sem gerir það kleift að senda
hana í margmiðlunarboðum.

Til að taka einn ramma út úr myndinni skaltu opna klippiskjáinn og velja
Valkostir > Taka skjámynd. Ýttu á skruntakkann á smámyndaskjánum og veldu
Taka skjámynd.

Veldu Valkostir > Kvikmynd > Vista til að vista hreyfimyndina. Til að tilgreina
Minni í notkun skaltu velja Valkostir > Stillingar.

background image

48

Til að senda hreyfimyndina skaltu velja Senda > Með margmiðlun, Með tölvupósti
eða Með Bluetooth. Upplýsingar um hversu stór margmiðlunarboð er hægt að
senda fást hjá þjónustuveitunni. Ef hreyfimyndin er of stór til að hægt sé að senda
hana í margmiðlunarboðum birtist

.