Nokia 6120 classic - Haldið utan um tengiliði

background image

Haldið utan um tengiliði

Veldu Valmynd > Tengiliðir.

Til að bæta við nýjum tengilið skaltu velja Valkostir > Nýr tengiliður. Fylltu út þá
reiti sem þú vilt og veldu Lokið.

Til að breyta upplýsingum um tengilið skaltu skruna að honum og velja
Valkostir > Breyta.

Til að velja sjálfgefin númer og heimilisföng tengiliðs skaltu velja hann og síðan
Valkostir > Sjálfvalin. Skrunaðu að sjálfgefna valkostinum og veldu Á númer.

Ef afrita á nöfn og númer af SIM-korti í símann skaltu velja Valkostir >
SIM-tengiliðir > SIM-skrá. Skrunaðu að nafninu sem þú vilt afrita eða
merktu tiltekin nöfn og veldu Valkostir > Afrita í Tengiliði.

Sjálfgefið er að tengiliðaupplýsingar séu vistaðar í minni símans. Til að afrita
síma-, fax- eða símboðanúmer úr tengiliðum á SIM-kortið skaltu skruna að
þeim tengilið sem á að afrita og velja Valkostir > Afrita > Á SIM-skrá.

Til sjá lista yfir númer í föstu númeravali skaltu velja Valkostir > SIM-tengiliðir >
Teng. í föstu nr.vali. Þessi stilling birtist einungis ef SIM-kortið styður það.

Þegar fast númeraval er virkt kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er
forritað í tækið.