Nokia 6120 classic - Stillingar fyrir textaboð

background image

Stillingar fyrir textaboð

Veldu Valmynd > Skilaboð > Valkostir > Stillingar > SMS-skilaboð og úr
eftirfarandi valkostum:

Skilaboðamiðstöðvar—Skrá yfir allar skilaboðastöðvar sem hafa verið valdar.

Skb.miðstöð í notkun—Tilgreinir hvaða skilaboðamiðstöð er notuð til að senda
textaboð og sérstakar skilaboðategundir, svo sem nafnspjöld.

Umritun stafa > Fullur stuðningur—Til að velja að allir stafirnir í sendum
skilaboðum birtist. Ef þú velur Minni stuðningur kunna stafir með kommum og
öðrum merkingum að breytast í aðra stafi.

Fá tilkynningu (sérþjónusta)—Þegar stillt er á er staða sendra skilaboða
(Bíður, Mistókst, Skilað) birt í Tilkynningar.

Gildistími skilaboða—Ef ekki næst í viðtakanda skilaboðanna á gildistímanum
er boðunum eytt úr skilaboðastöðinni. Athugaðu að símkerfið verður að styðja
þennan möguleika.

Skilaboð send sem—Til að tilgreina hvernig skilaboðin eru send. Sjálfgefin stilling
er Texti.

Æskileg tenging—Þú getur sent textaskilaboð um venjulegt GSM-símkerfi eða
um pakkagagnatengingu, ef símkerfið styður það.

background image

38

Svar um sömu miðst. (sérþjónusta)—Ef þú velur og viðtakandi svarar, þá eru
svarskilaboð hans send um sama númer skilaboðamiðstöðvarinnar. Ekki bjóða
öll símafyrirtæki upp á þennan valkost.