Nokia 6120 classic - Stillingar pósthólfa

background image

Stillingar pósthólfa

Veldu Valmynd > Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Tölvupóstur >
Pósthólf og pósthólf.

background image

39

Ef ekki er búið að tilgreina neinar pósthólfsstillingar er spurt hvort þú viljir
tilgreina þær.

Tengistillingar > Móttekinn póstur og Sendur póstur—Til að tilgreina réttar
stillingar skaltu hafa samband við tölvupóstsþjónustuveituna.

Notandastillingar
Veldu Notandastillingar og úr eftirfarandi stillingum:

Mitt nafn—Sláðu inn nafnið sem á að birtast í útsendum tölvupósti.

Senda tölvupóst (sérþjónusta)—Til að stilla hvenær pósturinn er sendur skaltu velja
Strax eða Í næstu tengingu.

Afrit til sendanda—Veldu til að senda afrit af tölvupóstinum á netfangið sem er
tilgreint í Tölvupóstfangið mitt.

Nota undirskrift—Veldu til að setja undirskrift í tölvupóstskeyti og til að búa til
eða breyta undirskriftartexta.

Tilkynning um tölvup.—Til að fá ekki tilkynningu um nýjan tölvupóst skaltu
velja Óvirkt.

Móttökustillingar
Veldu Móttökustillingar og úr eftirfarandi stillingum:

Sótt tölvupóstskeyti—Til að móttaka aðeins fyrirsagnir skaltu velja Aðeins hausar.
Til að takmarka hve mikið af gögnum er móttekið skaltu velja Stærðartakmörk og
slá inn hámarksmagn gagna í hverjum skilaboðum í kílóbætum. Til að sækja
tölvupóst handvirkt skaltu velja Sk.boð & viðhengi. Valkostirnir Stærðartakmörk
og Sk.boð & viðhengi eru einungis tiltækir í POP3-pósthólfum.

Sótt magn—Til að takmarka fjölda skilaboða sem sótt eru úr innhólfi ytra
pósthólfsins skaltu velja Úr innhólfi > Fjöldi tölvupósta og slá inn hámarksfjölda
skilaboða sem sækja skal. Einnig er hægt að takmarka fjölda skilaboða sem sótt
eru úr öðrum möppum í áskrift í Úr möppum (aðeins IMAP4-pósthólf).

IMAP4 möppuslóð (aðeins IMAP4-pósthólf)—Tilgreindu slóð fyrir möppu
í IMAP4-pósthólfum.

Áskrift að möppum (aðeins IMAP4-pósthólf)—Veldu möppur í pósthólfinu sem þú
vilt gerast áskrifandi að. Til að gerast áskrifandi eða hætta áskrift að möppu skaltu
skruna að henni og velja Valkostir > Gerast áskrifandi eða Hætta í áskrift.

background image

40

Sjálfvirk tenging
Veldu Sjálfvirk tenging og úr eftirfarandi stillingum:

Tölvup.tilkynningar—Til að taka sjálfvirkt á móti fyrirsögnum í tækið þegar nýr
tölvupóstur berst í ytra pósthólfið skaltu velja Uppfæra sjálfkrafa eða Aðeins
í heimakerfi
.

Móttaka tölvupósts—Til að taka sjálfkrafa á móti tölvupóstsfyrirsögnum
á tilteknum fresti skaltu velja Kveikt eða Aðeins í heimakerfi ef þú vilt aðeins
fá fyrirsagnir sendar í heimakerfið. Aðeins er hægt að taka sjálfvirkt á móti
fyrirsögnum í tvö pósthólf. Þú getur stillt á hvaða dögum og á hvaða tíma og
hve oft skal tekið á móti fyrirsögnunum í Dagar til að sækja, Klst. til að sækja
og Tímabil til að sækja.

Tölvup.tilkynningar og Móttaka tölvupósts geta ekki verið virk samtímis.