Nokia 6120 classic - Stillingar fyrir margmiðlunarboð

background image

Stillingar fyrir margmiðlunarboð

Veldu Valmynd > Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Margmiðlunarboð og úr
eftirfarandi valkostum:

Stærð myndar—Tilgreindu stærð myndar í margmiðlunarboðum. Ef þú velur
Upprunaleg er myndin ekki kvörðuð.

MMS-gerð—Ef þú velur Með viðvörunum lætur síminn þig vita ef þú reynir að
senda skilaboð sem ekki er víst að viðtökutæki styðji. Til að láta símann hindra
sendingu óstuddra skilaboða skaltu velja Takmörkuð. Ef þú velur Allt er hægt að
búa til skilaboð en ekki er víst að viðtakandinn geti skoðað skilaboðin.

Aðg.staður í notkun—Veldu hvaða aðgangsstaður er notaður sem tenging fyrir
margmiðlunarboð.

Móttaka margmiðl.—Til að taka við margmiðlunarboðum á heimakerfi skaltu velja
Sjálfv. í heimakerfi. Til að taka alltaf við margmiðlunarboðum skaltu velja Alltaf
sjálfvirk
. Til að sækja tölvupóst handvirkt skaltu velja Handvirkt val. Til að leyfa
ekki móttöku margmiðlunarboða og auglýsinga skaltu velja Óvirk.

Leyfa nafnl. skilaboð—Til að hafna skilaboðum frá óþekktum sendanda skaltu
velja Nei.

Fá auglýsingar—Til að tilgreina hvort þú vilt leyfa móttöku margmiðlunarboða
sem innihalda auglýsingar.

Tilkynning um skil—Ef þú vilt að staða sendra skilaboða (Bíður, Mistókst eða
Skilað) birtist í Tilkynningar skaltu velja . Hugsanlega geturðu ekki fengið
skilatilkynningar um margmiðlunarboð sem hafa verið send á tölvupóstfang.

Neita sendingu tilk. > —Til að hafna því að skilatilkynningar séu sendar.

Gildistími skilaboða (sérþjónusta)—Ef ekki næst í viðtakanda skilaboðanna
á gildistímanum er boðunum eytt úr margmiðlunarboðastöðinni.