Nokia 6120 classic - Ritun og sending skilaboða

background image

Ritun og sending skilaboða

Tækið styður sendingu textaskilaboða sem eru lengri en sem nemur lengdartakmörkunum
á stökum skilaboðum. Lengri skilaboð verða send sem röð tveggja eða fleiri skilaboða.
Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það. Stafir sem nota kommur eða
önnur tákn ásamt stöfum sumra tungumála, taka meira pláss og takmarka þannig þann
fjölda stafa sem hægt er að senda í einum skilaboðum.

Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn fer
yfir þessi mörk getur tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með MMS.

Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt margmiðlunarboð.
Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.

background image

32

Áður en hægt er að senda og taka á móti textaboðum, margmiðlunarboðum eða
tölvupósti eða tengjast við ytra pósthólfið verða réttar tengingarstillingar að vera
fyrir hendi. Sjá „Stillingar skilaboða“ á bls. 37.

1. Til að búa til skilaboð skaltu velja Valmynd > Skilaboð > Ný skilaboð og tegund

skilaboða. Til að búa til Hljóðskilaboð, sjá „Hljóðskilaboð“ á bls. 32.

2. Ýttu á skruntakkann til að velja viðtakendur eða hóp viðtakenda úr Tengiliðir

eða sláðu inn símanúmer eða netfang viðtakanda í Viðtak.-reitinn. Aðgreindu
viðtakendur með semíkommu (;).

3. Þegar tölvupóstur eða margmiðlunarboð eru búin til skaltu skruna niður að

efnisreitnum og slá inn hvert efni skilaboðanna er.

4. Skrunaðu niður í skilaboðareitinn og ritaðu skilaboðin.

Þegar þú skrifar skilaboð sýnir lengdarvísir skilaboðanna hve marga stafi þú
getur slegið inn. Til dæmis merkir 10 (2) að enn megi bæta 10 stöfum við texta
sem sendur verður í tveim hlutum.

Til að nota sniðmát fyrir textaskilaboðin skaltu velja Valkostir > Bæta í >
Sniðmáti. Til að búa til kynningu með sniðmáti sem senda skal sem
margmiðlunarboð skaltu velja Valkostir > Búa til kynningu. Til að nota sniðmát
fyrir margmiðlunarboðin skaltu velja Valkostir > Setja inn hlut > Sniðmát.

Til að setja inn hlut (skrá) í margmiðlunarboð skaltu velja Valkostir > Setja inn
hlut
> Mynd, Hljóðskrá eða Myndskeið. Til að búa til og setja inn nýjan hlut
(skrá) skaltu velja Valkostir > Setja inn nýja > Mynd, Hljóðskrá, Myndskeið eða
Skyggnu. Þegar hljóði er bætt við birtist

.

Til að bæta hlut (skrá) við tölvupóst skaltu velja Valkostir > Bæta inn > Mynd,
Hljóðskrá, Myndskeiði, Minnismiða, Annað eða Sniðmáti.

5. Veldu Valkostir > Senda til að senda skilaboðin.