
Tölvupóstur sóttur úr pósthólfi
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Tölvupóstboð geta
innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern
annan hátt.
1. Veldu Valmynd > Skilaboð > Pósthólf > Valkostir > Tengja.

35
2. Veldu Valkostir > Sækja tölvupóst og úr eftirfarandi valkostum:
Nýjan—Til að flytja allan nýjan tölvupóst í símann.
Valinn—Til að flytja aðeins þann tölvupóst sem hefur verið merktur.
Allan—Til að flytja allan tölvupóst úr pósthólfinu.
3. Eftir að þú hefur sótt tölvupóstinn getur þú skoðað hann á meðan tengingin
er virk. Veldu Valkostir > Aftengja ef þú vilt aftengjast og skoða móttekinn
tölvupóst og fyrirsagnir án tengingar.
4. Til að opna tölvupóst skaltu velja hann. Ef tölvupóstskeytið hefur ekki verið
sótt, síminn er ekki nettengdur og þú velur Opna er spurt hvort þú viljir sækja
tölvupóstinn úr pósthólfinu.
Til að skoða viðhengi tölvupósts sem táknuð eru með skaltu velja
Valkostir > Viðhengi. Þú getur sótt, opnað eða vistað viðhengi með skráarsniði
sem síminn styður.