Tölvupósti eytt
Til að eyða tölvupósti úr símanum en vista hann samt áfram í ytra pósthólfinu
skaltu velja Valmynd > Skilaboð > Pósthólf > Valkostir > Eyða > Síma eingöngu.
Fyrirsögn tölvupóstsins verður áfram í símanum. Ef þú vilt einnig fjarlægja
fyrirsögnina þarftu fyrst að eyða tölvupóstinum úr ytra pósthólfinu og síðan að
koma aftur á tengingu milli símans og ytra pósthólfsins til að uppfæra stöðuna.
Til að eyða tölvupósti úr símanum og ytra pósthólfinu skaltu velja Valkostir >
Eyða > Síma og miðlara.
Til að hætta við að eyða tölvupósti bæði úr símanum og miðlara, skaltu fletta að
tölvupóstinum sem hefur verið merktur þannig að það eigi að eyða honum við
næstu tengingu og velja Valkostir > Afturkalla.