Nokia 6120 classic - Hefðbundin textaritun

background image

Hefðbundin textaritun

Ýttu endurtekið á talnatakka, 1 til 9, þar til tiltekni stafurinn birtist. Það eru fleiri
stafir á talnatakka en þeir sem eru prentaðir á hann. Það veltur á tungumálinu
hvaða stafi er hægt að velja. Sjá Tungumál texta í „Tungumál“ á bls. 71.

Ef næsti stafur sem þú vilt nota er á sama takka og stafurinn sem þú varst að slá
inn skaltu bíða þar til bendillinn birtist (eða skruna áfram til að geta slegið stafinn
strax inn) og slá svo inn stafinn.

Til að slá inn tölustaf skaltu halda talnatakkanum inni.

Algengustu greinarmerki eða sérstafir eru á takkanum 1. Til að fá upp fleiri stafi
skaltu halda * inni.

Ef eyða á staf er stutt á hreinsitakkann. Ef eyða á fleiri stöfum er hreinsitakkanum
haldið inni.

Til að setja inn bil skaltu styðja á 0 . Ýttu þrisvar sinnum á 0 til að færa bendilinn
í næstu línu.

background image

30