Nokia 6120 classic - Símafundi komið á

background image

Símafundi komið á

1. Til að koma á símafundi (sérþjónusta) skaltu hringja í fyrsta þátttakandann.

2. Hringdu í annan þátttakandann með því að velja Valkostir > Ný hringing. Fyrra

símtalið er sjálfkrafa sett í bið.

3. Til að tengja fyrsta þátttakandann við símafundinn þegar nýju hringingunni er

svarað skaltu velja Valkostir > Símafundur.

Endurtaktu skref 2 ef þú vilt bæta nýjum þátttakanda við símtalið og veldu
Valkostir > Símafundur > Bæta í símafund. Síminn styður símafundi með allt
að sex þátttakendum.

4. Til að tala einslega við einn þátttakandann skaltu velja Valkostir >

Símafundur > Einkamál. Veldu þátttakandann og Einkamál. Símafundurinn er
settur í bið í símanum þínum. Aðrir þátttakendur geta haldið símafundinum
áfram. Til að taka aftur þátt í símafundinum skaltu velja Valkostir > Bæta
í símafund
.

5. Til að loka á þátttakanda skaltu velja Valkostir > Símafundur > Sleppa

þátttakanda, skruna að þátttakandanum og velja Sleppa.

6. Styddu á hætta-takkann til að slíta símafundinum.

background image

24