Nokia 6120 classic - Venjulegt símtal

background image

Venjulegt símtal

1. Sláðu inn svæðis- og símanúmerið í biðstöðu. Styddu á hreinsitakkann til

að fjarlægja tölu.

Þegar hringt er til útlanda skaltu styðja tvisvar á * til að fá fram alþjóðlega
forskeytið (+ kemur í stað alþjóðlega svæðisnúmersins) og slá inn
landsnúmerið, svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo símanúmerið.

2. Styddu á hringitakkann til að hringja í númerið.

Til að stilla hljóðstyrk meðan á símtali stendur skaltu styðja
á hljóðstyrkstakkana.

3. Styddu á hætta-takkann til að leggja á eða hætta við að hringja.

Til að hringja úr Tengiliðir skaltu velja Valmynd > Tengiliðir. Skrunaðu að tilteknu
nafni eða sláðu inn fyrstu stafi nafnsins og skrunaðu að nafninu. Styddu
á hringitakkann til að hringja í númerið.

background image

22

Til að hringja í nýlega valið númer skaltu styðja á hringitakkann í biðstöðu. Listi
yfir þau 20 númer sem þú hefur hringt í eða reynt að hringja í birtist. Skrunaðu að
númerinu sem þú vilt hringja í og styddu á hringitakkann.

Til að hringja kallkerfissímtal, sjá „Kallkerfi“ á bls. 89.