
Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda
Þar sem Samn. hreyfim. krefst tengingar við þriðju kynslóðar farsímakerfi (UMTS)
veltur Samn. hreyfim. á því hvort slíkt símkerfi sé til staðar. Upplýsingar um
farsímakerfi og gjald fyrir notkun forritsins fást hjá þjónustuveitunni. Til að hægt
sé að nota Samn. hreyfim. þarftu að gera eftirfarandi:
• Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir tengingar á milli
einstaklinga.
• Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu og sért innan
dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Ef þú byrjar samnýtinguna meðan þú ert innan
UMTS-farsímakerfis og skipt er yfir í GSM-farsímakerfi, lýkur samnýtingunni
en símtalið heldur áfram.
• Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og viðtakandinn séu skráðir
á UMTS-símkerfið. Ef þú býður einhverjum í samnýtingu og slökkt er á síma
viðkomandi aðila eða hann er ekki innan UMTS-þjónustusvæðis veit hann ekki
að þú ert að senda honum boð. En þú færð villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.

27