Nokia 6120 classic - Valkostir meðan á símtali stendur

background image

Valkostir meðan á símtali stendur

Margir þeirra valkosta sem hægt er að nota meðan á símtali stendur flokkast undir
sérþjónustu. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitunni.

Veldu Valkostir meðan á símtali stendur til að velja einhvern af eftirtöldum
valkostum:

Færa—Til að tengja símtal í bið við virkt símtal og aftengja sjálfan þig.

Skipta um—Til að ljúka virku símtali og svara símtali í bið.

Senda DTMF-tóna—Til að senda DTMF-tónastrengi (t.d. lykilorð). Sláðu inn
DTMF-strenginn eða leitaðu að honum í Tengiliðir. Til að slá inn biðstaf (w) eða
hléstaf (p) skaltu styðja endurtekið á *. Sendu tóninn með því að velja Í lagi.

Ábending: Hægt er að bæta DTMF-tónum við reitinn DTMF-tónar
á tengiliðaspjaldi.