
■ Símtali svarað eða hafnað
Styddu á hringitakkann til að svara símtali.
Til að stilla hljóðstyrk meðan á símtali stendur skaltu styðja á hljóðstyrkstakkana.
Til að slökkva á hringitóninum skaltu velja Hljóð af.
Ábending: Ef samhæft höfuðtól er tengt við símann er hægt að styðja
á takka höfuðtólsins til að svara símtali og leggja á.
Styddu á hætta-takkann til að hafna símtalinu eða veldu Valkostir > Hafna.
Sá sem hringir heyrir þá „á tali“ tón. Ef þú hefur ræst Símtalsflutn.-valkostinn
Ef á tali er símtal einnig flutt ef því er hafnað.
Til að senda textaskilaboð til þess sem hringir til að segja hvers vegna símtalinu
var ekki svarað skaltu velja Valkostir > Senda textaskilaboð. Hægt er að gera
svarskilaboðin virk og breyta texta þeirra. Sjá Hafna símtali með SMS og Texti
skilaboða í „Símtöl“ á bls. 75.