Nokia 6120 classic - Myndsímtali komið á

background image

Myndsímtali komið á

Í myndsímtali geta þú og viðmælandi þinn séð rauntíma hreyfimynd hvor af
öðrum. Viðtakandi þinn sér þá hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta átt myndsímtal þarftu að vera með USIM-kort og vera innan
þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
myndsímtalsþjónustu og áskrift að henni. Aðeins er hægt að koma á myndsímtali
við einn aðila í einu. Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan farsíma eða
ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á myndsímtölum þegar annað símtal,
myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.

Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir viðtakandinn ekki

hreyfimyndina eða símkerfið sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.

1. Sláðu inn númerið í biðstöðu eða veldu Valmynd > Tengiliðir og skrunaðu að

viðkomandi tengilið.

2. Veldu Valkostir > Hringja > Myndsímtal.

Það getur tekið smástund að koma á myndsímtali. Bíð eftir hreyfimynd birtist.
Ef ekki tekst að koma á tengingu, (t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir hringja venjulegt símtal
eða senda textaskilaboð í staðinn.

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær hreyfimyndir og heyrt hljóð
úr hátalaranum. Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu og þá heyrir þú
í honum og sérð e.t.v. kyrrmynd eða gráan bakgrunn.

Ýttu á hljóðstyrkstakkana til að auka eða minnka hljóðstyrkinn meðan
á símtali stendur.

Til að velja á milli þess að sýna hreyfimyndir eða að heyra einungis hljóð skaltu
velja Virkja eða Óvirkja > Hreyfimynd, Hljóð eða Hljóð & hreyfimynd.

Til að stækka eða minnka myndina af þér skaltu velja Stækka eða Minnka.
Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst á skjánum.

Hægt er að víxla hreyfimyndunum sem hafa verið sendar eða tekið hefur verið
á móti á skjánum með því að velja Víxla myndum.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali verður tekið gjald fyrir
símtalið sem myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni.

3. Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á hætta-takkann.

background image

26