Nokia 6120 classic - Valmynd

background image

Valmynd

Úr valmyndinni er hægt að komast í aðgerðir símans. Til að opna aðalvalmyndina
skaltu ýta á valmyndartakkann; hér eftir tilgreindur sem „veldu Valmynd“.

Til að opna aðgerð eða möppu skaltu skruna að henni og styðja á skruntakkann.

Útliti valmyndarinnar er breytt með því að velja Valmynd > Valkostir > Skipta um
útlit
og útlit valmyndar.

Ef röð aðgerða er breytt í valmyndinni getur hún verið önnur en hin sjálfgefna röð
sem lýst er í þessari notendahandbók.

Til að loka aðgerð eða möppu skaltu velja Til baka og Hætta eins oft og þörf er á til
að fara til baka í aðalvalmyndina eða velja Valkostir > Hætta.

Til að skipta milli opinna forrita skaltu velja Valmynd og halda takkanum inni.
Skiptigluggi forrita opnast þá með lista yfir þau forrit sem eru opin. Skrunaðu að
forriti og veldu það.

Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.

background image

18