Nokia 6120 classic - Ótengt snið

background image

Ótengt snið

Sniðið Ótengdur leyfir að síminn sé notaður þótt hann sé ekki tengdur. Þegar
sniðið Ótengdur er virkt er slökkt á þráðlausu tengingunni og það er sýnt með

á sendistyrkssvæðinu. Komið er í veg fyrir að RF-merki berist til eða frá símanum
og hægt er að nota símann án SIM- eða (U)SIM-korts. Nota skal ótengda sniðið
á stöðum sem eru viðkvæmir fyrir útvarpsbylgjum—um borð í flugvélum eða
á sjúkrahúsum. Hægt er að hlusta á tónlist í tónlistarspilaranum þegar síminn
er ótengdur.

Til að fara úr ótengda sniðinu skaltu ýta á rofann og velja annað snið.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra
valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að
hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst að
virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá
inn lykilnúmerið.

background image

16