Nokia 6120 classic - Leiðbeiningar um sannvottun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannvottun á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að tryggja að þú fáir rafhlöður
frá Nokia skaltu kaupa þær hjá viðurkenndum söluaðila Nokia og skoða heilmyndarmiðann
á eftirfarandi hátt:

Þó svo þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að
rafhlaðan sé sannvottuð. Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé
ekki ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna
sannvottun rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila
rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu
að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni
og „Nokia Original Enhancements“ táknið frá öðru.

2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða
niður ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir
staðsetningu hennar.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin
Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun rafhlaða sem eru ekki
samþykktar af framleiðanda getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að
tækið og aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt
að ógilda allar þær samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia-rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.

background image

96