Nokia 6120 classic - USB-tenging

background image

USB-tenging

Hægt er að nota USB-gagnasnúru til að flytja gögn milli símans og samhæfrar
tölvu. Einnig er hægt að nota USB-gagnasnúru með Nokia PC Suite.

Veldu Valmynd > Stillingar > Tenging > USB-snúra. Til að velja sjálfgefnu
USB-stillinguna skaltu velja USB-stilling og þá stillingu sem þú vilt. Til að
tækið spyrji um tilgang tengingar í hvert sinn sem snúran er tengd skaltu
velja Spyrja við tengingu > .

Til að nota símann með Nokia PC Suite skaltu velja PC Suite. Til að samstilla
miðlunarskrár, svo sem tónlist, við samhæfa útgáfu af Windows Media Player
skaltu velja Miðlunarspilari. Til að opna skrár á minniskortinu eins og á
færanlegum diski skaltu velja Gagnaflutningur.

Þegar búið er að flytja gögn skal gæta þess að óhætt sé að taka
USB-gagnasnúruna úr sambandi við tölvuna.