Nokia 6120 classic - Gagnaflutningur

background image

Gagnaflutningur

Með gagnaflutningi er hægt að afrita eða samstilla tengiliði, dagbókarfærslur
og jafnvel önnur gögn, svo sem hreyfimyndir og kyrrmyndir um Bluetooth úr
samhæfum síma.

Það fer eftir hinum símanum hvort samstilling er möguleg og hvort aðeins er hægt
að afrita gögn einu sinni.

Gera skal eftirfarandi til að flytja eða samstilla gögn:

1. Veldu Valmynd > Stillingar > Tenging > Flutningur. Þegar Flutningur er

notaður í fyrsta sinn birtast upplýsingar um forritið á skjánum. Veldu
Halda áfram til að hefja gagnaflutning.

Ef Flutningur hefur verið notaður skaltu velja Flytja gögn.

2. Para þarf símana til að hægt sé að flytja gögn um Bluetooth.

Það fer eftir gerð hins símans hvort forrit er sent og sett upp í honum svo að
hægt sé að flytja gögn. Farið eftir leiðbeiningunum.

3. Veldu hvaða efni þú vilt láta flytja í símann þinn.

4. Efnið er flutt í símann. Flutningstíminn fer eftir því hve mikið af gögnum er

flutt. Hægt er að stöðva flutning og halda honum áfram síðar.