Nokia 6120 classic - Stillingar Bluetooth-tengingar

background image

Stillingar Bluetooth-tengingar

Veldu Valmynd > Stillingar > Tenging > Bluetooth.

Þegar þú virkjar Bluetooth-tækni í fyrsta skipti er beðið um að þú gefir
símanum heiti.

Bluetooth—Til að kveikja og slökkva á Bluetooth .

Sýnileiki síma míns > Sýnilegur öllum—Til að leyfa að önnur Bluetooth-tæki
geti ávallt fundið símann þinn. Til að leyfa að hægt sé að finna símann þinn
á tilgreindu tímabili skaltu velja Tilgreina tímabil. Til öryggis er þér ráðlagt að nota
stillinguna Falinn þegar það er mögulegt.

Nafn síma míns—Til að gefa símanum heiti.

Ytra SIM > Kveikt—Til að gera SIM-kort símans virkt frá öðru tæki (t.d. bílbúnaði)
með Bluetooth-tækni (SIM access profile).

Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt
að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur
verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.