Nokia 6120 classic - Opnunarlyklar

background image

Opnunarlyklar

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til
að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að opna efni sem er
verndað með OMA DRM 2.0 og OMA DRM 1.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að
verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að opna nýtt
efni sem er varið með stafrænum réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra
endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar
hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða
notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem tilgreinir hvernig
hægt er að nota efnið.

Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite
til að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu. Ef notaðar eru aðrar
flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt OMA
DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði fluttir með efninu. Einnig gæti
þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.

Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að opna
verndaða efnið ef SIM-kortið er í tækinu.

Veldu Valmynd > Stillingar > Gagnastjóri > Opn.lyklar til að skoða opnunarlykla
stafrænna réttinda sem eru geymdir í símanum þínum.

Til að skoða gilda lykla ( ) sem eru tengdir einni eða fleiri miðlunarskrá skaltu
velja Gildir lyklar. Lyklahópur, sem inniheldur nokkra lykla, er sýndur með

.

Til að sjá lyklana í lyklahópnum skaltu velja lyklahópinn.

Til að skoða ógilda lykla (

) þar sem notkunartími skráarinnar er útrunninn skaltu

velja Ógildir lyklar. Til að kaupa meiri notkun eða lengja notkunartíma skráarinnar
skaltu velja ógildan lykil og Valkostir > Sækja nýjan lykil. Ekki er víst að hægt sé að
uppfæra opnunarlykla ef móttaka vefþjónustuboða er óvirk. Sjá „Stillingar
þjónustuboða“ á bls. 40.

Til að skoða opnunarlykla sem eru ekki í notkun skaltu velja Lyklar án notk.. Engar
skrár eru tengdar ónotuðum opnunarlyklum.

Til að skoða nákvæmar upplýsingar, svo sem gildistíma og hvort hægt sé að senda
skrána, skaltu skruna að opnunarlykli og velja hann.

background image

85