Nokia 6120 classic - Aðgangsstaðir

background image

Aðgangsstaðir

Aðgangsstaður er nauðsynlegur til að koma á gagnatengingu. Þú getur tilgreint
mismunandi gerðir aðgangsstaða:

• MMS-aðgangsstaðir til að senda og taka við margmiðlunarboðum,

• WAP-aðgangsstaður til að skoða vefsíður

• Internetaðgangsstaður (IAP) (til dæmis til að senda og taka við tölvupósti)

Kannaðu hjá þjónustuveitunni hvers konar aðgangsstað þú þarft að nota fyrir
þá þjónustu sem þú vilt fá aðgang að. Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
gagnaþjónustu og áskrift að henni.

Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum frá þjónustuveitunni, en einnig
getur verið að að stillingarnar séu forstilltar í símanum þínum.

Til að búa til nýjan aðgangsstað eða breyta gildandi aðgangsstað skaltu velja
Valkostir > Nýr aðgangsstaður eða Breyta. Til að búa til nýjan aðgangsstað með
því að nota stillingar gildandi aðgangsstaðar skaltu fletta að honum og velja
Valkostir > Afrita aðgangsstað.

Það fer eftir því hvaða tenging er valin í Flutningsmáti hvaða stillingar eru í boði.
Fylltu út í alla reiti sem eru merktir með Þarf að skilgr. eða stjörnu.

Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá eftirfarandi stillingar: Flutningsmáti,
Nafn aðgangsstaðar (aðeins fyrir pakkagögn), Innhringinúmer (aðeins fyrir
gagnasímtöl), Notandanafn, Lykilorð, Aðgangskort, Heimasíða, Tegund
gagnasímtals
(aðeins fyrir gagnasímtöl) og Hámarks gagnahraði (aðeins fyrir
gagnasímtöl).

Nafn tengingar—Gefðu tengingunni lýsandi heiti.

Biðja um lykilorð—Ef þú vilt þurfa að slá inn nýtt lykilorð við hverja innskráningu
á miðlara, eða ef þú vilt ekki vista lykilorðið í símanum skaltu velja .

background image

78

Ef tilgreina þarf útgáfu Internet-samskiptareglna, IP-númer síma, nafnaþjón fyrir
lén, proxy-miðlara og frekari stillingar fyrir gagnasímtöl, svo sem svarhringingar,
PPP-þjöppun, innskráningu og frumstillingu mótalds, skaltu velja Valkostir >
Frekari stillingar. Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá réttu stillingarnar.