Nokia 6120 classic - Símtöl

background image

Símtöl

Senda mitt númer (sérþjónusta)—Til að símanúmerið þitt birtist () eða birtist
ekki (Nei) þeim aðila sem þú hringir í. Þjónustuveitan getur sett upp stillinguna
þegar þú gerist áskrifandi að þjónustunni. (Stillt af símkerfi).

Símtal í bið (sérþjónusta)—Til að símkerfið láti þig vita ef hringt er í þig á meðan þú
ert að tala í símann. Til að senda beiðni til símkerfisins um að gera þjónustu
símtala í bið virka skaltu velja Gera virkt. Til að senda beiðni til símkerfisins um að
gera þjónustu símtala í bið óvirka skaltu velja Ógilda. Til að kanna hvort þjónustan
er virk skaltu velja Athuga stöðu.

Hafna símtali með SMS—Til að hægt sé að hafna símtölum með textaskilaboðum.
Sjá „Símtali svarað eða hafnað“ á bls. 24.

Texti skilaboða—Til að slá inn texta sem á að senda þegar þú hafnar símtali með
textaskilaboðum.

Mynd í myndsímtali—Til að velja að kyrrmynd birtist í stað hreyfimyndarinnar
þegar þú hafnar myndsendingu í myndsímtali.

Sjálfvirkt endurval—Til að láta símann gera allt að tíu tilraunir til að hringja
aftur í númer sem ekki náðist samband við. Styddu á hætta-takkann til að gera
sjálfvirka endurvalið óvirkt.

Sýna lengd símtala—Til að láta símann birta lengd yfirstandandi símtals.

Samantekt e. hring.—Til að láta símann birta í stutta stund áætlaða lengd síðasta
símtals.

Hraðval > Virkt—Til að láta símann hringja í númerin sem úthlutað hefur verið
á hraðvalstakkana 2 til 9 með því að halda inni viðkomandi talnatakka.

Takkasvar > Virkt—Til að geta svarað símtölum með því að styðja stuttlega
á hvaða takka sem er, fyrir utan hægri valtakkann, hljóðstyrkstakkana og
hætta-takkann.

Lína í notkun (sérþjónusta)—Þessi stilling sést aðeins ef SIM-kortið styður tvö
númer í áskrift, þ.e. tvær símalínur. Veldu hvora símalínuna (Lína 1 eða Lína 2)
þú vilt nota til að hringja og senda skilaboð.

Hægt er að svara símtölum á báðum línum, án tillits til þess hvor línan er valin.
Þú getur ekki hringt ef þú velur Lína 2 og ert ekki áskrifandi að þeirri sérþjónustu.
Til að hindra val á línum skaltu velja Línuskipting > Gera óvirka ef SIM-kortið
styður það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.

background image

76