Nokia 6120 classic - Símkerfi

background image

Símkerfi

Símkerfi—Til að velja hvaða símkerfi skal nota (birtist aðeins ef þjónustuveitan
styður það). Ef þú velur Tvöfalt kerfi skiptir tækið sjálfkrafa á milli GSM- og
UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og reikisamninga á milli
símafyrirtækjanna.

Val á símafyrirtæki—Til að stilla símann þannig að hann leiti að og velji sjálfvirkt
eitt af þeim símkerfum sem eru í boði skaltu velja Sjálfvirkt. Til að velja tiltekið
símkerfi handvirkt af lista skaltu velja Handvirkt. Ef tengingin við símkerfið sem
valið var handvirkt rofnar, spilar síminn hljóðmerki og biður þig um að velja
símkerfi aftur. Símkerfið sem valið er verður að vera með reikisamning við
heimasímkerfið þitt, þ.e. fyrirtækið sem lét þig fá SIM-kortið þitt.

Um endurvarpa (sérþjónusta)—Til að stilla símann þannig að hann gefi til kynna
þegar hann er notaður í símkerfi sem byggist á örbylgjutækni (MCN) og til að
virkja móttöku upplýsinga um endurvarpa skaltu velja Virkar.

background image

77