Nokia 6120 classic - Útilokanir símatala

background image

Útilokanir símatala

Með útilokun símtala (sérþjónusta) geturðu takmarkað hringingar úr og í símann.
Til að breyta stillingunum þarftu lykilorð útilokanna frá þjónustuveitunni þinni.

Skrunaðu að tilteknum útilokunarvalkosti og til að senda beiðni til símkerfisins
um að virkja takmarkanirnar skaltu velja Valkostir > Gera virkar. Til að afnema
þær takmarkanir sem hafa verið valdar skaltu velja Ógilda. Til að kanna hvort
símtölin eru útilokuð skaltu velja Athuga stöðu. Til að breyta lykilorði útilokunar
skaltu velja Breyta lykli f. útilok.. Til að hætta við allar virkar útilokanir skaltu velja
Ógilda all. útilokanir.

Útilokun og flutningur símtala getur ekki verið virkt samtímis.

Þegar símtöl eru útilokuð kann að vera hægt að hringja í tiltekin opinber neyðarnúmer.