
Aukahlutir
Til að breyta stillingum aukahlutar í Stillingar aukahluta skaltu skruna að
aukahlut, svo sem Höfuðtól, velja Valkostir > Opna og úr eftirfarandi valkostum:
Sjálfvalið snið—Til að velja það snið sem þú vilt að verði virkt þegar þú tengir
aukahlutinn við símann.
Sjálfvirkt svar—Til að stilla símann þannig að hann svari símtali sjálfkrafa
5 sekúndum eftir að þú tengir þennan aukahlut við hann. Ef Gerð hringingar
er stillt á Pípa einu sinni eða Án hljóðs er ekki hægt að nota sjálfvirkt svar og þú
verður að svara símtölum handvirkt.
Ljós—Til að ljósið í símanum lýsi stöðugt á meðan aukahluturinn er í notkun skaltu
velja Kveikt.