Nokia 6120 classic - Snið

background image

Snið

Í Snið er hægt að stilla og sérsníða tóna fyrir mismunandi aðstæður, umhverfi eða
hópa. Hægt er að sjá sniðið sem er í notkun efst á skjánum í biðstöðu. Ef sniðið
Almennt er í notkun birtist aðeins dagsetningin.

Veldu Valmynd > Stillingar > Snið.

Til að gera snið virkt skaltu velja það og síðan Gera virkt.

Ábending: Til að skipta með hraði úr einhverju sniði yfir í sniðið Án hljóðs
skaltu halda # inni í biðstöðu.

Til að sérsníða snið skaltu velja snið, Sérsníða og úr eftirfarandi valkostum:

Hringitónn—Til að stilla hringitón fyrir símtöl (einnig hreyfimyndartón) fyrir símtöl
skaltu velja tón af listanum. Styddu á hvaða takka sem er til að slökkva á tóninum.
Þú getur einnig breytt hringitónum í tengiliðum. Sjá „Hringitónn valinn“ á bls. 45.

Hringitónn myndsímt.—Til að velja hringitón fyrir myndsímtöl.

Segja nafn hringj.—Veldu Kveikt Til að síminn spili nafn þess sem hringir
hverju sinni.

Gerð hringingar—Þegar Styrkur eykst er valið byrjar hljóðstyrkurinn á lægsta stigi
og hækkar svo stig af stigi þar til því stigi sem hefur verið valið er náð.

Hljóðst. hringingar—Til að velja hljóðstyrk hringitóna og hljóðmerki skilaboða.

background image

63

Viðv.tónn skilaboða—Til að velja tón texta- og margmiðlunarboða.

Viðv.tónn tölvupósts—Til að velja tón fyrir tölvupóstskeyti.

Varar við með titringi—Til að láta símann titra þegar einhver hringir í þig eða
sendir þér skilaboð.

Takkatónar—Til að stilla hljóðstyrk takkatónanna.

Aðvörunartónar—Til að gera viðvörunartóna virka eða óvirka.

Gera viðvart um—Til að stilla símann þannig að hann hringi aðeins þegar hringt er
úr símanúmeri sem tilheyrir tilteknum hópi tengiliða. Ekkert heyrist þegar fólk
utan hópsins hringir í þig.

Nafn sniðs—Til að gefa sniðinu nafn. Þessi stilling birtist ekki í sniðunum Almennt
og Ótengdur.

Þegar sniðið Ótengdur er í notkun er síminn ekki tengdur við farsímakerfið.
Ef ekkert SIM-kort er í símanum skaltu ræsa símann í sniðinu Ótengdur til að
nota sumar aðgerðir í honum.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra
valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að
hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst að
virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá
inn lykilnúmerið.