Nokia 6120 classic - Samskipanastillingar

background image

Samskipanastillingar

Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, spjall, kallkerfi, tölvupóst,
samstillingu, straumspilun og vafra, verður að slá inn réttar samskipanastillingar
í símanum. Síminn kann að setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra,
margmiðlunarboð, aðgangsstað og straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem
notað er. Stillingarnar er einnig hægt að fá í samskipanaboðum og þá þarf að vista
þær í símanum. Nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni eða næsta
viðurkennda söluaðila Nokia.

Þegar stillingarnar berast í samskipanaboðum, og þær eru ekki vistaðar og
virkjaðar sjálfvirkt, birtist 1 ný skilaboð á skjánum. Veldu Sýna til að opna
skilaboðin. Veldu Valkostir > Vista til að vista stillingarnar. Þú gætir þurft
að slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá þjónustuveitunni.