Nokia 6120 classic - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað
við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til
að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.

TRUFLUN

Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif
á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða
sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni.
Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI

Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

background image

7

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar
sem geymdar eru í tækinu.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARHRINGINGAR

Tryggja skal að kveikt sé á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og fara aftur
í biðstöðu. Sláðu inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann. Gefa skal
upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið Nokia 6120 classic sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar í
GSM 850, 900, 1800 og 1900 og UMTS 850 og 2100 símkerfunum. Þráðlausa tækið,
Nokia 6121 classic, sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM 850, 900,
1800 og 1900 og UMTS 900 og 2100 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og
lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða framsenda
myndir, tónlist (þ.m.t. hringitóna) og annað efni.

Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir. Líkt og með tölvur geta vírusar,
skaðleg skilaboð og forrit, ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal varúðar og
aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir, hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar
frá traustum aðilum. Til að auka öryggi tækisins ættir þú að hugleiða að setja upp
vírusvarnarbúnað með uppfærsluþjónustu og nota eldvegg.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera
kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur
valdið truflun eða hættu.

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera
fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að nota
þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram
á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald fyrir
þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif
á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi
og þjónustu.

background image

8

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki
gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann einnig að
hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP
samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa tækis, svo sem netvafur, tölvupóstur, kallkerfi,
spjall og margmiðlunarboð krefjast símkerfisstuðnings við þessa tækni.

Aukahlutir, rafhlöður og hleðslutæki

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Tækið
er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3, AC-4, AC-5, DC-4 hleðslutækjum
eða CA-44 millistykki.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur
samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll
ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar.
Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.